Rice og Gates funda með leiðtogum arabaríkja í Egyptalandi 31. júlí 2007 13:28
Herstuðningur Bandaríkjanna til Ísraels, Egyptalands og Saudi Arabíu verður stóraukinn á næstu árum. Utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Bandaríkjanna funda nú með leiðtogum nokkurra arabaríkja í því augnamiði að fá stuðning þeirra til að aðstoða ríkisstjórnina í Írak og koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir Írana. Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Robert Gates varnarmálaráðherra komu til Egyptalands í morgun til að funda með leiðtogum nokkurra arabaríkja um ástandið í Írak. Markmið heimsóknar þeirra er að leita eftir stuðningi til að ráða bót á vanda Íraksstjórnar og fá Ísrael, Egyptaland og Saudi Arabíu í lið með sér til að koma í veg fyrir kjarnorkuáætlanir Írans. Bandaríkin munu á næstu tíu árum selja löndunum vopn fyrir rúma sextíu milljarða bandaríkjadala. Meðal þeirra eru eldflaugavarnarkerfi, orrustuþotur og herskip. Fundarhöld hjá sambandi arabaríkja hafa staðið yfir í Sharm el Sheikh frá því í gær. Arabaríkin hafa rætt tillögu George Bush Bandaríkjaforseta um að haldinn verði friðarfundur um málefni Mið-Austurlanda seinna á árinu. Bush stjórnin vonast til að viðræður við leiðtoga nágrannaríkja Íraks beri árangur og að stríðsástandið þar verði rætt ásamt kjarnorkuáætlunum Írans. Bandaríkjamenn vilja að Saudi Arabía og önnur nágrannaríki beiti Írana fjárhagslegum þrýstingi til að koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir þeirra. Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands og George Bush Bandaríkjaforseti lýstu því einnig yfir á blaðamannafundi í Camp David í gær að beita þyrfti Írana verulegum þrýstingi til að koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir þeirra.
Mest lesið Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Innlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Erlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Fleiri fréttir Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Sjá meira