Sjö látnir eftir jarðskjálftann í Japan Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 16. júlí 2007 12:37 Vegir skemmdust og sprungur mynduðust í jarðskjálftanum.
Að minnsta kosti sjö létust og 700 slösuðust þegar jarðskjálfti 6,8 á Richter skók norðvesturhluta Japan. Skjálftinn varð klukkan rúmlega eitt í nótt að íslenskum tíma. Almenningssamgöngur eru í lamasessi á svæðinu og átján þúsund heimili eru án rafmagns.Jarðskjálftinn mældist 6,8 á Richter skalanum og jafnaði fleiri hundruð byggingar við jörðu. Fimm eldri borgarar létust þegar hús hrundu ofan á þá í Kashiwazaki sem varð einna verst úti í skjálftanum.Byggingar í Tokyo skulfu verulega og slökkt var á kjarnakljúfum í kjarnorkuveri í varúðarskyni. Björgunarsveitir hafa unnið að því að leita fólks í rústum í allan dag.Einn slasaðist þegar þak hrundi þar sem badminton keppni var um það að bil að hefjast, en farþegar lestar sem hrökk af sporunum sluppu hins vegar ómeiddir. Tvö hundruð þúsund manns voru fluttir frá heimilum þeirra í Kashiwazaki, sem varð einna verst úti í skjálftanum.Viðvörun vegna flóðbylgju var gefin út, en hún síðan dregin til baka þegar í ljós kom að hún myndi aðeins verða hálfs meters há. Þá kviknaði eldur við rafstöð kjarnorkuvers en það slökkti á sér sjálfkrafa áður en nokkuð gerðist. Stjórnvöld segja enga hættu stafa frá kjarnorkuverinu og að það hafi ekki komið leki að því.Shinzo Abe forsætisráðherra Japana flaug í morgun til þeirra svæða sem verst urðu úti í skjálftanum.Skjálftinn skemmdi vegi og brýr og úr lofti mátti sjá gríðarmiklar sprungur sem mynduðust. Fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið, sá stærsti var 5,6 á Richter en þeir ullu ekki manntjóni eða flóðbylgjum. Búist er við eftirskjálftum á svæðinu út vikuna.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira