Erlent

Hörð átök í fátækrahverfum Rio de janeiro

MYND/AP

Að minnsta kosti 18 létu féllu í hörðum bardögum brasílískra lögreglumanna og íbúa í fátækrahverfi í Rio de Janeiro í dag. Fjölmennar sveitir lögreglumanna fóru inn í hverfið og segja yfirvöld að hinir föllnu hafi verið grunaðir um eiturlyfjasmygl.

Fréttastofa Reuters hefur eftir heimildarmanni úr öryggislögreglunni að aðgerðin hafi verið sett á til að sýna styrk lögreglunnar en borgin mun halda íþróttaleika Ameríkuþjóða í næsta mánuði.

Lögregluliðið var fjölmennt en rúmlega eitt þúsund manns tóku þátt í aðgerðinni. Miklir byssubardagar brutust út og segjast yfirvöld hafa fellt að minnsta kosti átján grunaða glæpamenn. Tíu eru sagðir hafa slasast, þar af var einn lögreglumaður. Glæpamennirnir höfðu reist götuvirki í fátækrahverfinu og hellt olíu á brattar götur hverfisins til þess að koma í veg fyrir að brynvarðir trukkar lögreglunnar kæmust leiðar sinnar.

 

Lögreglan lagði hald á 40 kíló af kókaíni og 30 kíló af maríhúana í aðgerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×