Erlent

Krefjast gagna vegna hlerana

MYND/AP
Öldungadeild bandaríska þingsins hefur krafið Hvíta Húsið um skjöl sem tengjast eftirliti stjórnvalda á grunuðum hryðjuverkamönnum. Ráðamenn í Hvíta húsinu hafa hingað til neitað að afhenda gögnin og Bush forseti hefur þvertekið fyrir að lög hafi verið brotin þegar hleranir voru fyrirskipaðar án þess að fyrir þeim væru heimildir.

 

Aðgerðir stjórnarinnar hófust eftir árásirnar ellefta september en þá fóru stjórnvöld að fylgjast með tölvupóstsamskiptum og hlera síma Bandaríkjamanna sem grunaðir voru um að tengjast hryðjuverkasamtökum. Ekki þurfti dómsúrskurð fyrir eftirlitinu.

 

Gagnrýnendur Bush segja að með þessum aðgerðum hafi Bush forseti gerst brotlegur við lög um réttindi borgaranna. Njósnaaðgerðirnar komust í hámæli 2005.

 

Í málinu hefur þingnefndin stefnt Hvíta húsinu, Dick Cheney varaforseta, Þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna og dómsmálaráðuneytinu þar í landi. Hvíta húsið hefur frest fram til 18. júlí til að bregðast við.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×