Erlent

Grunaður um að hafa nauðgað sjötugri konu ítrekað

Frá Árósum.
Frá Árósum.

34 ára gamall Marokkóbúi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur í Árósum vegna gruns um að hafa nauðgað sjötugri konu ítrekað í íbúð konunnar á mánudag.

Fram kemur á vef Jótlandspóstsins að hann hafi komist inn til konunnar þar sem frændi hans leigði hjá henni. Hann hélt henni á heimili hennar í sex tíma og kom ítrekað fram vilja sínum.

Maðurinn viðurkennir að hafa haft mök við konuna en segir þau hafa farið fram með samþykki hennar. „Ef hún hefur mótmælt þá hef ég ekki uppgötvað það en ég skil ekki dönsku. Ef ég hef misskilið vinsemd hennar biðst ég afsökunar," sagði maðurinn fyrir rétti.

Fram kemur í frétt Jótlandspóstsins að konan hafi borið augljós merki þess að henni hefði verið haldið nauðugri og nauðgað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×