Erlent

Sarkozy skorar á alþjóðasamfélagið

Forseti Frakklands skorar á alþjóðasamfélagið að sýna Súdönum hörku taki þeir ekki þátt í samvinnu um endalok átakanna í Darfur. Hann segir þögnina um stríðsglæpi í Darfur viðhalda átökum á svæðinu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir umheiminn hafa brugðist íbúum Darfurs.

Ráðstefna um málefni Darfur hófst í París í morgun. Fulltrúar Bandaríkjamanna, Frakka, Kínverja og Egypta eru meðal þeirra sem sitja fundinn.Rúmlega 200 þúsund hafa látið lífið í átökunum í Darfur sem hófust árið 2003 og meira en tvær og hálf milljón hefur flúið heimili sín. Fyrir fundinn sagði Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna að heimurinn hefði brugðist íbúum Darfur. Nýverið samþykktu stjórnvöld í Súdan að hleypa nær 20 þúsund manna sameiginlegu friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna og Afríkubandalagsins inn í landið. Engu að síður er enn óttast að forseti Súdan, Omar al-Bashir eigi eftir að skipta um skoðun. Nicolas Sarkozy forseti Frakklands sagði að yfirvöld í Súdan yrðu að gera sér grein fyrir því að án samvinnu yrði þeim mætt af fullri hörku.

Hingað til hefur aðeins sjö þúsund manna lið Afríkubandalagsins verið í Darfur. Sá fjöldi hefur ekki dugað til þess að binda endi á átökin eða vernda það fólk sem enn er á svæðinu.

Enn eru íbúar Darfur myrtir í átökunum og erfitt hefur verið fyrir alþjóðasamfélagið að aðhafast vegna tregðu súdanskra stjórnvalda. Alþjóða stríðsglæpadómstóllinn gaf í síðasta mánuði út fyrstu handtökuskipanir vegna þjóðarmorða í héraðinu á árunum 2003 til 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×