Ölvun, slagsmál og læti á Akureyri í nótt 16. júní 2007 09:52
Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en þar fara nú fram bíladagar. Mikil fjöldi ferðamanna er í bænum og öll tjaldsvæði yfirfull. Lögregla hafði vart undan við að stöðva slagsmál og ólæti en ölæði gesta á svæðinu var mikið. Allar fangageymslur voru margsetnar vegna þessa og segir lögregla helgina fara af stað með svipuðum hætti og ef um verslunarmannahelgi væri að ræða. Um klukkan hálffjögur var lögregla kölluð til að tjaldstæðinu að Hömrum en þar hafði verið ráðist á mann. Þegar lögregla kom á staðinn til að ræða við árásarmanninn kom annar að og veittist að lögreglu. Mennirnir voru báðir handteknir og færðir í fangageymslur. Þá var lögregla kölluð að tjaldstæðinu á nýjan leik klukkustund síðar en þá höfðu brotist út hópslagsmál við innganginn. Ráðist var á gæslumann tjaldsvæðisins sem meiddist lítillega og annar var skallaður í andlit. Þar með var ekki öll nótt úti enn því um sexleytið brutust aftur út hópslagsmál á tjaldsvæðinu og voru tveir handteknir. Allt í allt var tilkynnt um 7 líkamsárásir á Akureyri í nótt. Auk þess þurfti lögregla að stöðva fjöldan allan af slagsmálum milli manna þó aðallega á tjaldsvæðinu að Hömrum, sinna útköllum vegna hávaða í heimahúsum og taka á móti fjölmörgum kvörtunum vegna svokallaðrar "burn-out" keppni sem fór fram á Akureyrarvelli í gærkvöld þar sem kveikt var í hjólbörðum og var mest kvartað vegna reyks og slæmrar lyktar sem að fylgdi þessari keppni.
Mest lesið Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Innlent Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Innlent Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Erlent Líkamsárás og vinnuslys Innlent Skammdegið víkur með hækkandi sól Innlent „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Innlent Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fundur um fyrirhugaða atvinnustefnu Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Vöktuðu rústirnar fram á nótt og fylgjast áfram með Líkamsárás og vinnuslys Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Skammdegið víkur með hækkandi sól Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Þetta skýrir mögnuðu norðurljósin „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Gengið ágætlega að slökkva og kalla fólk til baka Kvöldfréttir: Í beinni frá Gufunesi Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Reyna aftur að fá Helga Bjart á bak við lás og slá Niðurstöður samræmdra prófa í vor verði opinberaðar Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Mátti skjóta hund vegna viðbúins fjárhagslegs tjóns Loka lauginni vegna veðurs Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Funda um Evrópumálin „fjarri kastljósi fjölmiðla“ Ásdís Halla og Erna Kristín skiptast á ráðuneytum Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Vonskuveður víða um land og óvissustig í gildi Íslenskum ríkisborgurum fjölgaði fimmtán sinnum meira en erlendum Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Bálhvasst á Austfjörðum og óvissustig vegna snjóflóðahættu Maður ársins og slökkviliðið brugðust við vegna álftar sem fraus föst Þrjár vikur í fyrsta gjalddaga og 15% eiga eftir að skrá kílómetrastöðu Sjá meira