Kalla eftir samstöðu til að draga úr mengun 4. júní 2007 21:39 Mótmæli vegna fundar átta stærstu iðnríkja heims. MYND/AFP
Kanadamenn hafa kallað eftir samstöðu meðal átta stærstu iðnríkja heims um að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda. Þetta kom fram í máli Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, á fundi átta stærstu iðnríkja heims í Berlín í dag. Hann telur þó ólíklegt að Kanada nái að draga úr mengun í samræmi við Kyoto bókunina. Þjóðverjar hafa lagt mikla áherslu á að iðnríkin átta komist að einhvers konar samkomulagi um samdrátt í losun gróðurhúsaloftegunda. Hingað til hafa Bandaríkjamenn ekki tekið undir sjónarmið Þjóðverja og hafa frekar viljað fara sínar eigin leiðir án alþjóðlegra skuldbindinga. Ólíkt nágrönnum sínum í suðri hafa Kanadamenn lýst yfir áhuga á einhvers konar samkomulagi. Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, sagði meðal annars í dag að Kanadamenn ættu margt sameiginlegt með Þjóðverjum í afstöðu sinni til þessa málaflokks. „Ég og Merkel erum á sömu skoðun í þessu máli. Öll lönd verða að skuldbinda sig til að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda." Á sama tíma ítrekaði Stephen þó fyrri yfirlýsingar kanadískra stjórnvalda um að ómögulegt væri fyrir Kanadamenn að draga úr mengun í samræmi við Kyoto bókunina.
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Erlent Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Innlent Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Innlent Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Innlent Fleiri fréttir Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Sjá meira