Talsmaður danskra neytenda kærir Sterling 4. júní 2007 16:47
Flugfélagið Sterling, sem er í eigu íslenskra aðila, hefur verið kært til lögreglu í Danmörku fyrir verðauglýsingar félagsins á Netinu. Á heimasíðu félagsins var gefið upp verð án skatta og það var ekki fyrr en viðskiptavinurinn var kominn lengra í bókunarferlinu að hið raunverulega verð var gefið upp. Frá þessu er greint á heimasíðu Neytendasamtakanna. Í frétt á heimasíðu samtakanna er sagt að flugfélagið hafi þverskallast við að breyta þessu þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir frá umboðsmanni neytanda í Danmörku. Þó segir að félagið hafi breytt fyrirkomulaginu í maí síðastliðnum, en kæran standi eftir sem áður. Neytendasamtökin segja að tíðindin veki upp spurningar hér á landi varðandi fyrirkomulagið hjá íslenskum flugfélögum. Samtökin benda á að samkvæmt íslenskum lögum á að gefa upp verð með skatti og öðrum opinberum gjöldum. Þá sé bannað að veita í auglýsingum rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. „Hvað varðar bókanir á heimasíðum hafa íslensku félögin þó bætt sig verulega," segir í fréttinni á heimasíðu samtakanna. „Icelandair gefur nú upp verð með sköttum og gjöldum frá upphafi bókunarferlisins. IcelandExpress gefur raunar á fyrstu stigum upp verð án skatta og gjalda en hið raunverulega verð til neytandans birtist í litlum kassa öðru megin á síðunni." Þá segir að Flugfélag Íslands standi sig einna verst og er tekið dæmi af fugi til Grænlands þar sem sköttum og gjöldum er ekki bætt við fyrr en seint í bókunarferlinu.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira