Rauði krossinn fordæmir morð á tveimur starfsmönnum á Sri Lanka Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 4. júní 2007 13:37 MYND/AFP
Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans fordæmir brottnám og morð á tveimur starfsmönnum Rauða krossins á Sri Lanka þann 3. júní. Skorað hefur verið á þarlend yfirvöld að hefja tafarlaust rannsókn á morðunum en ekki er vitað hverjir voru að verki. Sinnarasa Shanmugalingam, 32 ára, og Karthekesu Chandramohan,26 ára, höfðu báðir unnið árum saman í Batticaloadeild Rauða krossins á austurströnd Sri Lanka að því er segir í tilkynningu frá Rauða krossinum á Íslandi. Þeir voru á heimleið eftir að hafa sótt námskeið í höfuðborg landsins Colombo ásamt fjórum starfsfélögum sínum þegar þeir voru numdir á brott. Lík þeirra fundust daginn eftir í Kiriella í Ratnapurasýslu í suðurhluta landsins. Ekki er vitað hverjir voru að verki. "Við erum harmi slegin yfir þessum svívirðilegu morðum og sendum samúðaróskir til aðstandenda og samstarfmanna hinna látnu," sagði Neville Nanayakkara, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Sri Lanka. Alheimshreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans skorar jafnframt á yfirvöld á Sri Lanka að hefja tafarlausa rannsókn á morðunum. „Rauði krossinn minnir alla aðila sem eiga hlutdeild í átökunum á Sri Lanka að morð sem þessi eru brot á alþjóðlegum mannúðarlögum. Starf mannúðarsamtaka beri að virða, og tryggja verður að öryggi starfsmanna þeirra sé ekki ógnað," segir í tilkynningunni. Þá krefst Rauði krossinn þess að gætt sé að því að starfsmönnum mannúðarsamtaka sem aðstoða óbreytta borgara og þeim sem ekki taka lengur þátt í átökunum sé hlíft við árásum af þessu tagi og að þeir hafi óheftan aðgang til að sinna skjólstæðingum sínum á öruggan hátt. Ennfremur segir að Rauði krossinn muni halda áfram starfi sínu í landinu. Engir sendifulltrúar eru nú að störfum á eyjunni fyrir Rauða kross Íslands.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira