Lofaði fjölmiðla fyrir framgöngu þeirra í aðdraganda kosninga 31. maí 2007 14:19
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði nýafstaðnar kosningar vitnisburð um að lýðræðishefð væri hér sterk og lauk lofsorði á fjölmiðlaflóruna í aðdraganda kosninga þegar hann setti 134. löggjafarþing þjóðarinnar nú á þriðja tímanum. Ólafur las upp forsetabréf þar sem fram kom að þing yrði kallað saman í dag og lýsti því í kjölfarið að alþingi Íslendinga væri sett. Ólafur sagði sérstakan blæ á þingstörfum nú þegar skipað hefði verið á ný til sæta á Alþingi eftir þingkosningar. Benti hann á að lýðræði hefði verið hér lengur við lýði en víða í heiminum og að sá jarðvegur lýðræðis sem myndast hefði hér væri bæði arfleifð fyrri tíma og þróun síðustu áratuga eftir að þjóðin hefði fengið sjálfstæði á ný. Lofaði fjölmiðla í aðdraganda kosninga Ólafur sagði góða kosningaþátttöku vitnisburð um að lýðræðishefð væri hér sterk. Sama þróun ætti sér ekki stað hér á landi og víða annars staðar þar sem dregið hefði úr kosningaþátttöku. Þá sagði hann fjölmiðlaflóruna hafa í aðdraganda kosninganna í vor veitt öllum stjórnmálaöflum tækifæri á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri en það væri breyting frá fyrri tímum þegar stjórnmálaflokkar hefðu haft tök á fjölmiðlunum. Sagði hann enn fremur að þótt hverjum sýndist sitt um úrslit kosninganna gæti þjóðin þó orðið sammála um að lýðræðið væri grundvöllur stjórnskipunarinnar. Óskaði hann þeim sem náðu kjöri á þing til hamingju með traustið. „Ótvíræður trúnaður er í því fólginn að vera kjörinn alþingismaður," sagði Ólafur og bauð sérstaklega velkomna nýja þingmenn sem eru óvenjumargir að þessu sinni. Sagði hann enn fremur á að tíminn liði hratt á Alþingi og því til vitnis benti hann á að enginn væri eftir á þingi frá þeim tíma sem hann hefði sjálfur sest fyrst á Alþingi. Óskaði hann enn fremur nýrri ríkisstjórn velfarnaðar og þakkaði fráfarandi ráðherrum samstarfið í ríkisráði. Herskálar verða að háskóla Ólafur gerði enn fremur átök og samstarf stjórnar og stjórnarandstöðu á þingi að umtalsefni í þingsetningaræðu sinni. Sagði hann það sífellt algengara að samkomulag væri milli stjórnar og stjórnarandstöðu um mál en benti jafnframt á að einhver ágreiningur yrði alltaf til staðar. Mikilvægt væri að þingheimur hagaði störfum sínum þannig að þjóðfélagið lamaðist ekki vegna átaka. Ólafur sagði enn fremur að menn hefðu orðið vitni að því hvernig mál sem hefði klofið þjóðina í tvennt í áratugi hefði verið til lykta leitt í vetur en þá hefði Bandaríkjaher horfið af landi brott. Herskálum væri nú breytt í háskóla og hann hefði á ferðum sínum um Bandaríkin fundið fyrir miklum áhuga hjá þarlendum vísindamönnum á uppbyggingunni í gömlu herstöðinni. Fjölmörg tækifæri byðu þjóðarinnar á næstu árum samhliða hnattvæðingu, verkefni sem meðal annar sneru að baráttunni við loftlagsbreytingar. Óskaði hann að lokum nýkjörnu Alþingi allra heilla og fól Jóhönnu Sigurðardóttur, sem lengst hefur setið á Alþingi af núverandi þingmönnum, fundarstjórn. Stefnuræða forsætisráðherra í kvöld Þingfundi var svo frestað en haldið verður áfram klukkan hálffjögur þar sem farið verður yfir kjörbréf þingmanna og þeir undirrita drengskapareiða auk þess sem og skipað er í sæti í þingsal. Þá er kosið í fastanefndir. Starfsaldursforseti, Jóhanna Sigurðardóttir, stýrir fundi í upphafi en forseti þingsins er síðan kosinn. Samkomulag er um að Sturla Böðvarsson, fyrrverandi samgönguráðherra, gegni því embætti næstu tvö árin. Fundi er slitið síðdegis en í kvöld klukkan tíu mínútur fyrir átta flytur Geir H. Haarde stefnuræðu sína. Í kjölfarið verða umræður um hana og er þeim útvarpað og sjónvarpað.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Fleiri fréttir Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Sjá meira