Sérstakur dómstóll fjalli um morðið á Hariri 30. maí 2007 22:16 Rafik Hariri var myrtur í sprengjutilræði í febrúar 2005.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld að settur verði á laggirnar alþjóðlegur dómstóll sem á að rétta yfir sakborningum vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Ályktunin var samþykkt í ráðinu með 10 atkvæðum gegn engu, en fulltrúar Rússlands, Kína, Suður Afríku, Indónesíu og Qatar sátu hjá. Mikið hefur verið deilt um það í Líbanon hvort koma eigi slíkum dómstól á laggirnar en ríkisstjórn landsins hefur frest fram til 10. júní til þess að samþykkja ályktunina. Geri hún það ekki gæti Öryggisráðið stofnað dómstólinn án samþykkis landsins líkt og gert var í Rwands og í Júgóslavíu á sínum tíma. BBC hefur eftir syni Hariri að dómstóllinn marki tímamót í sögu landsins og að tilurð hans gefi Líbönum færi á að sameinast. Ríkin sem sátu hjá við ályktunina segja að stofnun dómstólsins geti verið olía á eldinn í Líbanon þar sem ástandið talið mjög viðkvæmt nú um stundir. Rannsókn á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur leitt í ljós að morðið á Hariri hafi „sennilega" verið framið í pólitískum tilgangi og að Sýrlendingar hafi verið viðriðnir ódæðið sem dró 22 til dauða árið 2005. Sýrlensk stjórnvöld neita staðfastlega þeim ásökunum. Sýrlendingar hafa þegar gefið út yfirlýsingu vegna ályktunar Öryggisráðsins þar sem segir að stofnun dómstólsins brjóti á fullveldi Líbanons og gæti ýft ófriðaröldur í landinu. Assad Sýrlandsforseti hefur einnig látið hafa eftir sér að réttað verði yfir þeim Sýrlendingum sem grunaðir eru í málinu í Sýrlandi og að þeir verði ekki framseldir til alþjóðadómstólsins.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Fleiri fréttir Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Sjá meira