Blair styður hertar refsiaðgerðir gegn Súdan 30. maí 2007 12:15
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í morgun yfir fullum stuðningi við hertum refsiaðgerðum Bandaríkjastjórnar gegn súdönsku ríkisstjórninni vegna ástandsins í Darfur-héraði. Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að refsiaðgerðir gegn súdönskum stjórnvöldum yrðu hertar þar sem þau væru sérlega ósammvinnuþýð við erindreka Sameinuðu þjóðanna við að koma á friði í Darfur-héraði í vesturhluta landsins. Á fjórða tug súdanskra fyrirtækja, sem flest tengjast olíuiðnaði landsins, verður bannað að stunda viðskipti í Bandaríkjunum svo og fjórum mönnum sem taldir eru tengjast ofbeldinu í Darfur. Þá tilkynnti Bush um að leitað yrði leiða til að víkka út alþjóðlegt vopnasölubann sem Súdanar eru þegar beittir. Tony Blair kvaðst í morgun styðja aðgerðir Bandaríkjastjórnar heilshugar en hann er á ferðalagi um Afríku. Hann skoraði ennfremur á aðildarríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að beita sér enn frekar fyrir friði í Darfur. Frá því að ófriðurinn hófst í héraðinu árið 2003 hafa 200.000 manns látið þar lífið og tvær milljónir hrakist frá heimilum sínum.
Mest lesið Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningamerki Innlent Dóru Björt hafnað: „Nú eru kaflaskil“ Innlent Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Erlent Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Innlent Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Innlent Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Innlent Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Innlent Sakfelling Steinu staðfest Innlent Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Innlent Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Sjá meira