Hættan liðin hjá? Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 27. apríl 2007 17:13
Svissneska lyfjafyrirtækið Roche, framleiðandi inflúensulyfsins Tamiflu, hefur dregið úr framleiðslu á lyfinu þar sem framboð er orðið meira en eftirspurn. Lyfið er það sem helst hefur verið talið gagnast gegn mögulega mannskæðu afbrigði fuglaflensunnar, H5NI. Þá er lyfið einnig notað við hefðbundnum inflúensufaröldrum. Yfirmenn fyrirtækisins sögðust á fimmtudag geta framleitt 400 milljón skammta árlega, en einungis 215 milljón skammtar hefðu verið pantaðir af ríkisstjórnum. "Þó við hættum framleiðslu í dag, ættum við nóg til að sinna öllum pöntunum í ár og næsta vetur með afgangi." sagði William Burns, forstjóri lyfjadeildar Roche. Roche mun því draga úr framleiðslu til samræmis við eftirspurn, en þó geyma varaforða af hráefni til framleiðslunnar, í því tilfelli að til faraldurs kæmi. Fleiri en áttatíu lönd, ásamt Alþjóða heilbrigðisstofnuninni (WHO) hafa undanfarin þrjú ár byrgt sig upp af lyfinu til að búa sig undir að H5N1 afbrigði fuglaflensunnar, sem hingað til hefur aðeins verið áhyggjuefni fyrir fiðurfénað, stökkbreytist og byrji að smitast á milli manna. Til að bregðast við þessu hóf Roche samstarf við aðra framleiðendur og í lok síðasta árs hafði framleiðslan aukist fimmtánfalt frá því sem var árið 2004. Löndin geyma mismiklar birgðir, til eru lyf fyrir um 5% Grikkja, 25% Bandaríkjamanna og Frakkar hyggjast geyma skammta fyrir helming landsmanna. Þá hafa fjölmörg fyrirtæki tryggt sér nóg til að meðhöndla starfsmenn sína. Frá árinu 2003 hafa 291 smitast af H5N1 afbrigði fuglaflensunnar, þar af hafa 172 látist. Á sama tímabili hafa um fjórar milljónir manna látist úr malaríu. Hlutabréf í Roche lækkuðu lítillega við fréttirnar.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira