Stjórnarandstæðingum meina að yfirgefa Simbabve 18. mars 2007 16:15 Robert Mugabe, forseti Simbabves. MYND/AP
Yfirvöld í Simbabve hafa meinað fjórum félögum í stjórnarandstöðunni að fara úr landi og börðu einn þeirra þegar hann hugðist fljúga til Evrópu á fund. Nelson Chamisa, talsmaður stjórnarandstöðuflokksins MDC, var á leið til Brussel og segir hóp manna hafa ráðist á sig fyrir utan flugvöllinn í Harare, höfuborg Simbabve, og barið sig. Hann var fluttur á sjúkrahús í borginni þar sem í ljós kom að hann var höfuðkúpubrotinn. Þá voru tvær konur úr stjórnarandstöðunni stöðvaðar á flugvellinum þegar þær hugðust fljúga til Suður-Afríku til að leita sérfræðings vegna meiðsla sem þær hlutu í haldi lögreglunnar. Enn fremur var fjórði maðurinn handtekinn á leið úr landi. Stjórn Roberts Mugabes, forseta Simbabve, hefur sætt harðri gagnrýni á alþjóðavettvangi eftir að í ljós kom að lögregla hefði barið leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Morgan Tsvangirai, hrottalega eftir að hann var handtekinn í mótmælum í Harare fyrir viku. Mugabe hefur hins vegar vísað gagnrýninni á bug og sagt stjórnarandstöðuna stuðla að ofbeldinu. Tsvangirai sagði í samtali við BBC í dag að teldi að valdataflið í landinu myndi brátt snúast og að 27 ára einræði Mugabes í Simbabve yrði brátt á enda.
Mest lesið Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Erlent Alelda bíll í Kópavogi Innlent Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Innlent Grunaður barnaníðingur gengur laus Innlent Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Erlent Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Innlent Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Innlent Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Innlent Fleiri fréttir Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Sjá meira