Knútur í megrun 3. ágúst 2007 19:29
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur og hefur ísbjörninn Knútur fengið að kynnast því. Þessi heimsfrægi ísbjörn hefur nú verið sendur í megrun. Knútur fæddist í dýragarðinu í Berlín í lok síðasta árs. Móðir hans hafnaði honum og bróður hans skömmu eftir að þeir komu í heiminn og drapst bróðir hans fljótlega. Knútur dafnaði hins vegar vel. Hann vakti strax mikla athygli meðal Berlínarbúa og aðkomumanna sem flykktust í garðinn til að sá litla ísbjarnarhúninn. Athyglin á honum jókst til muna þegar dýraverndarsamtök lýstu því yfir að best væri að lóga honum í stað þess að láta hann alast upp í dýragarði. Fræðgarsól Knúts steig hratt og vakti Knútur snemma á þessu ári heimsathygli. Knútur eldist hins vegar eins og aðrir og eftir því sem hann stækkar hefur sjarmi bjarnarsins aðeins farið að minnka. Auka fiskur og rúnstykki hafa sett strik í reikninginn en nú er svo komið að Knútur þykir orðinn alltof feitur. Umsjónarmenn hans hafa af honum nokkrar áhyggjur en Knútur vegur nú hátt í sextíu kíló og hefur sprengt vigtina sem notuð er til að fylgjast með þyngd hans. Yfirmenn garðsins hafa gripið til þess ráðs að setja Knút í megrun og fylgjast þeir náið með mataræði hans. Spurning er svo hvort aðdáendur hans haldi dyggð við hann þrátt fyrir þyngdina og haldi áfram að mæta í garðinn.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Sjá meira