Erlent

Yfir 120 milljarða króna tjón í Bretlandi vegna flóða

Menn grípa til ýmissa aðferða til þess að halda vatninu í skefjum eins og sést hér í Upton on Severn í Worcester-skíri.
Menn grípa til ýmissa aðferða til þess að halda vatninu í skefjum eins og sést hér í Upton on Severn í Worcester-skíri. MYND/AP

Samtök breskra tryggingafélaga telja að kröfur vegna tjóns í flóðunum á Bretlandi undanfarnar daga muni nema einum milljarði punda, jafnvirði um 125 milljarða króna. Þá óttast þau að talan hækki enn frekar ef það flæðir meira í landinu. Bresk stjórnvöld hafa gefið út viðvörun um frekari flóð á næstu dögum af völdum rigninga en fjórir hafa látist af völdum flóða í mið- og norðurhluta landsins í vikunni. Júnímánuður er sá úrkomumesti í Bretlandi frá því að mælingar hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×