Erlent

Búið að opna Fleet street

Lögregla í Lundúnum rýmdi eftir hádegið Park Lane vegna grunsamlegs bíls í bílastæðahúsi við Hyde Park.
Lögregla í Lundúnum rýmdi eftir hádegið Park Lane vegna grunsamlegs bíls í bílastæðahúsi við Hyde Park. MYND/AP

Lögregla í Lundúnum hefur nú lokað þriðju götunni á innan við sólarhring vegna grunsamlegrar bifreiðar. Nú í eftirmiðdaginn var Fleet street lokað en fyrr í dag var gatan Park Lane við Hyde Park rýmd vegna grunsamlegs bíls í neðanjarðarbílastæði undir garðinum. Hyde Park var einnig lokað.

Mikill viðbúnaður hefur verið í Lundúnum frá því í nótt þegar lögregla aftengdi bílsprengju við skemmtistað nærri Haymarket sem er skammt frá Piccadilly Circus og Leicester Square í miðborg Lundúna.

 



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×