Stefán Þórðarson skoraði mark IFK Norrköping í 1-1 jafntefli gegn IF Sylvia í dag í næstefstu deild Svíþjóðar. Stefán spilaði allan leikinn í framlínunni en Garðar B. Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður. Norrköping er sem fyrr langefst í deildinni, eða með 15 stiga forskot á næstu lið. Þá skoraði Helgi Valur Daníelsson fyrir Östers IF í 1-1 jafntefli gegn Landskrona.