Átök á Norðurbrú vegna Ungdómshússins Sighvatur Jónsson skrifar 2. september 2007 10:06
Sextíu og þrír voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í nótt. Þúsund ungmenni söfnuðust saman til að minnast þess að hálft ár var í gær liðið frá því að Ungdómshúsið var rifið. Í morgun hefur verið unnið að hreinsun á Norðurbrú í Kaupmannahöfn eftir óeirðirnar í gærkvöldi. Þær brutust út í kjölfar mótmæla sem efnt var til í minningu Ungdómshússins svokallaða, en í gær var hálft ár liðið frá því að húsið var rifið. Skemmdir og verksummerki eru sögð í líkingu við mótmælin þá. Um þúsund ungmenni söfnuðust saman rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi, við götuna þar sem Ungdómshúsið stóð. Mótmælendurnir lokuðu fyrir umferð um Norðurbrúargötu. Líkt og áður í mótmælaaðgerðum á Norðurbrú loguðu götueldar og kveikt var í ruslagámum. Nokkrir mótmælenda létu greipar sópa í verslunum eftir að hafa mölbrotið rúður þeirra. Varningur úr verslununum var í sumum tilfellum nýttur á bálköstinn. Múrsteinum og bensínsprengjum var auk þess kastað að lögreglu. Lögregla þurfti að kalla til aukin liðsstyrk og táragasi var beitt til að dreifa mótmælendum. Af þeim sextíu og þremur sem voru handteknir í nótt verður gæsluvarðhalds krafist yfir að minnsta kosti sautján. Hinir handteknu eru meðal annars kærðir fyrir að beita lögregluna ofbeldi. Danskir fjölmiðlar segja að tólf hinna handteknu sé konur og að tveir séu undir fimmtán ára aldri. Sextíu og þriggja manna hópurinn verður yfirheyrður í dag.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Sjá meira