Trúmaður í forsetastól í Tyrklandi í dag Þórir Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2007 11:54 Abdulla Gul, til hægri, og forsætisráðherrann Recep Tayyip Erdogan, til vinstri, eru samherjar í tyrkneskum stjórnmálum. Mynd: AP
Fastlega er gert ráð fyrir því að Abdulla Gul verði kjörinn forseti Tyrklands, í atkvæðagreiðslu í þinginu upp úr hádegi í dag. Tyrkland hefur verið á mörkum austurs og vesturs í landfræðilegum og sögulegum skilningi síðustu tvö þúsund árin eða meir. Þar sem áður voru grísk hof og höfuðkirkjur eru nú moskur. En frá því tyrkneska lýðveldið var stofnað upp úr fyrra stríði hefur algjör aðskilnaður ríkis og mosku verið meginstef í tyrknesku þjóðlífi. Konur hafa verið lattar mjög til að bera slæður og er reyndar bannað að vera með slæður í opinberum byggingum. Tyrkneski herinn hefur litið á sig sem útvörð þessarar stefnu - og því er það herinn sem allra augu beinast að, nú þegar trúmaður sest á forsetastól. Kona Abdulla Gul ber slæðu, sem til dæmis hefur ekki verið gert í forsetahöllinni, þar sem hún mun eiga heima. Gul segir enga ástæðu til að óttast að hann muni grafa undan aðskilnaði ríkis og mosku, þó að hann hafi fyrr á árum tilheyrt hreyfingu íslamista í landinu. Herforingjar hafa fjórum sinnum á síðustu hálfri öld velt ríkisstjórnum sem þeim hefur ekki líkað við - og þeir segja nú að herinn muni áfram standa vörð um þá stefnu að blanda ekki saman trúmálum og stjórnmálum í Tyrklandi.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Sjá meira