Eiginkonan til sölu fyrir fimmtíu dali Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 5. maí 2007 20:41
Stjórnvöld í Brasilíu hafa skipað uppboðsvef þar í landi að fjarlægja auglýsingu þar sem maður að nafni Breno býður 35 ára gamla eiginkonu sína til sölu fyrir fimmtíu Bandaríkjadali, eða sem nemur um þrjúþúsund og tvöhundruð krónum. Þetta kemur fram á fréttavef CNN. Maðurinn bar mikið lof á konu sína í auglýsingunni, lýsti líkamlegu atgervi hennar og sagði hana virði þyngdar sinnar í gulli. Þá væri hún bæði heimilisleg og góður félagi. Yfirvöld skipuðu uppboðsvefnum, sem er að hluta í eigu Ebay, að fjarlægja auglýsinguna á föstudag, þar sem hún bryti í bága við þarlend lög sem banna sölu á líffærum, fólki, blóði, beinum og húð. Þá kemur fram að ekki sé ljóst hvort auglýsingin hafi verið grín, en hún hafði þó verið fjarlægð af uppboðsvefnum á laugardag. Talsmenn uppboðsvefsins sögðust ekki hafa vitað af þessari meintu kvennasölu. Nærri ein milljón auglýsinga væri á þessum tiltekna uppboðsvef og ómögulegt væri að fylgjast með þeim öllum. Maðurinn gaf einfaldar skýringar á því hvers vegna hann vildi selja konu sína. Hann sagðist virkilega þurfa á peningunum að halda.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira