Unglingar myrtir í Lundúnum 27. júlí 2007 18:35
Sautján unglingar hafa verið skotnir eða stungnir til bana í Lundúnum á þessu ári. Breska lögreglan leitar nokkurra unglinga sem taldir eru tilheyra glæpagengi en þeir eru grunaðir um að hafa myrt sextán ára pilt í suðurhluta Lundúna í gær. Piltarnir eltu fórnarlambið uppi á hjólum í ninjubúningum og skutu til bana. Bresku lögreglunni barst tilkynning skömmu eftir miðnætti í gær að skotum hefði verið hleypt af við íbúðarhús nærri Stockwell í suðurhluta Lundúna. Þegar lögreglan kom á vettvang fann hún þar sextán ára sómalískan pilt liggjandi í blóði sínu. Pilturinn var úrskurðaður látinn skömmu síðar. Lögreglan leitar nú fimm til sjö unglinga sem talið er að elt hafi piltinn uppi á BMX-hjólum, náð að króa hann af og svo skotið hann til bana. Breska blaðið The Mirror greinir frá því að pilturinn sé sá sautjándi sem sé stunginn eða skotinn til bana í Lundúnum það sem af er þessu ári. Í lok síðasta mánaðar var fjórtán ára piltur stunginn til bana í af ungmennum í Islington í norðurhluta Lundúna. Talið er að ungmennin sem myrtu piltinn í gær hafi tilheyrt einhverskona glæpagengi. Gripið hefur verið til sérstakra aðgerða til að reyna að koma í veg fyrir fleiri ungmennamorð og hafa lögregluþjónar fengið auknar heimildir til að stöðva ungmenni og leita að vopnum á þeim.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Fleiri fréttir Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns Sjá meira