Tryggvi og Helgi marksæknastir 22. október 2007 00:01 FH-ingurinn Tryggvi Guðmundsson átti flestar stoðsendingar í Landsbankadeildinni á nýafstöðnu tímabili.
Tryggvi Guðmundsson hjá FH og Helgi Sigurðsson úr Val komu að flestum mörkum sinna liða í Landsbankadeild karla í sumar. Tryggvi Guðmundsson gaf flestar stoðsendingar allra leikmanna í deildinni. FH-ingurinn Tryggvi Guðmundsson stóð uppi skólaus á Lokahófi KSÍ en hann er efstur á blaði þegar kemur að því hvaða leikmenn Landsbankadeildar karla komu að flestum mörkum sinna liða í deildinni í sumar. Tryggvi átti líka flestar stoðsendingar af öllum leikmönnum. Fréttablaðið fer í dag yfir helstu tölfræðilista frá Landsbankadeild karla árið 2007. Helgi Sigurðsson úr Val og Tryggvi Guðmundsson úr FH áttu þátt í flestum mörkum sinna liða í sumar en báðir komu þeir að 17 mörkum. Helgi skoraði 12 sjálfur, átti þrjár stoðsendingar og félagar hans fylgdu tvisvar á eftir skoti hans og skoruðu. Tryggvi skoraði 8 mörk sjálfur, átti 8 stoðsendingar og fiskaði eitt víti sem gaf mark. Markakóngur deildarinnar, Jónas Grani Garðarsson, kom síðan í þriðja sæti en hann kom að 15 mörkum Fram, skoraði 13 sjálfur og lagði upp önnur tvö. Fjórir leikmenn Landsbankadeildarinnar náðu að fiska tvö víti í deildinni í sumar. Þetta eru Fylkismaðurinn Páll Einarsson, Framarinn Kristján Hauksson, HK-maðurinn Oliver Jaeger og Víkingurinn Gunnar Kristjánsson. Það var FH-ingurinn Tryggvi Guðmundsson sem gaf flestar stoðsendingar allra leikmanna í deildinni í sumar en hann átti síðustu sendingu fyrir átta mörk félaga sinna. Þetta er besta ár Tryggva á ferlinum hvað varðar stoðsendingar en hann hafði mest áður gefið 7 stoðsendingar sumarið 1996. Tryggvi hafði samanlagt gefið 8 stoðsendingar fyrstu tvö tímabilin sín í Kaplakrika. Valsmennirnir Guðmundur Benediktsson og Baldur Aðalsteinsson komu næstir á eftir Tryggva með sjö stoðsendingar en Guðmundur var hinsvegar sá leikmaður sem kom að undirbúningi flestra marka á tímabilinu. Guðmundur átti þátt í undirbúningi 13 marka Valsmanna, gaf eins og áður sagði 7 stoðsendingar en átti auk þess 6 sendingar sem voru ekki síðasta sending en áttu mikinn þátt í undirbúningi markanna. Guðmundur hafði átt flestar stoðsendingar tvö síðustu sumur og hefur nú alls gefið 26 stoðsendingar og átt þátt í undirbúningi 38 marka í 53 leikjum í Valsbúningnum síðustu þrjú sumur. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður HK og Fjalar Þorgeirsson í marki Fylkis voru efstir yfir tölfræði markvarðanna. Gunnleifur var, eins og áður hefur komið fram, efstur markvarða í einkunnagjöf Fréttablaðsins en hann var einnig sá markvörður sem varði flest skot í leik. Gunnleifur varði 92 skot í leikjunum 18 eða 5,1 að meðaltali í leik. Fjalar var hinsvegar sá aðalmarkvörður sem fékk á sig fæst mörk í leik (18 í 18 leikjum) auk þess að halda oftast hreinu (8) og verja hæsta hlutfall skota sem á hann komu (77,5 prósent).ooj@frettabladid.is
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Aston Villa - Man. United | Rauðu djöflarnir heimsækja heitasta lið deildarinnar Enski boltinn Fleiri fréttir Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Sjá meira