Íslenski boltinn

Árni Gautur: Ekki ásættanlegt

Elvar Geir Magnússon skrifar

„Að tapa 2-4 á heimavelli gegn Lettum er ekki ásættanlegt," sagði Árni Gautur Arason, markvörður íslenska liðsins, við Vísi fljótlega eftir leikinn í dag.

„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Við töpuðum illa fyrir þeim úti og við vissum að þeir hafa marga góða leikmenn. Leikurinn þróaðist því miður einmitt eins og við vildum ekki að hann myndi þróast."

„Við vorum illa skipulagðir og varnarvinnan almennt alls ekki nógu góð. Við fengum mjög góð færi eftir að hafa minnkað muninn í 4-2. Hinsvegar náðum við ekki að skapa okkur nægilega mikið af opnum færum," sagði Árni Gautur.

„Við verðum að vera miklu einbeittari og það er margt sem við þurfum að bæta eftir þennan leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×