Chavez á enn í stríði við sjónvarpsstöðvar 29. maí 2007 20:45 MYND/AFP
Ríkisstjórn Venesúela hefur ásakað þarlenda sjónvarpsstöð um að hvetja til þess að forseti landsins Hugo Chavez verði myrtur. Ásökunin kemur strax í kjölfar þess að stjórnin lét loka annari sjónvarpsstöð í landinu en sú ákvörðun olli uppþotum í höfuðborginni Caracas og víðar. Ríkisstjórnin segir að á stöðinni, Globovision, hafi verið kallað eftir því að Chavez yrði myrtur en forsvarsmenn stöðvarinnar neita ásökununum. Ráðherra fjarskiptamála í landinu segir að stöðin hafi hvatt til tilræðisins með því að sýna myndir frá því þegar Jóhannesi Páli páfa var sýnt banatilræði árið 1981. Undir mynskeiðinu var leikið lagið „This does not stop here," í flutningi Rubens nokkurs Blades, en sá mun vera núverandi ferðamálaráðherra í Panama. „Sérfræðingar okkar hafa komist að þeirri niðurstöðu að myndskeiðinu sé ætlað að hvetja til morðsins á forseta Venezuela," er haft eftir ráðherranum á BBC. Hann hefur kært stöðina fyrir tiltækið til ríkissaksóknara landsins. Sjónvarpsstjóri Globovision segir ásökunina vera fáránlega. Globovision var eina sjónvarpsstöðin í landinu sem birti myndir af mótmælunum í Caracas á dögunum. Þá hefur ríkisstjórnin einnig kært bandarísku fréttastöðina CNN fyrir að tengja Chavez við hryðjuverkasamtökin al-Qaeda. Í tilkynningu frá CNN eru ásökununum vísað á bug.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Sjá meira