Mannrán borga sig Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 26. júlí 2007 12:21
Hópur háttsettra Suður-kóreskra embættismanna hélt í dag til Kabul til að reyna að fá 22 Suður-Kóreumenn leysta úr haldi talibana. Mannræningjarnir myrtu einn úr hópnum í gær. Talsmaður talibana segir það reynast afar vel að ræna erlendum ríkisborgurum. Yfirvöld í Afghanistan segjast ekki ætla að beita hervaldi til að leysa gíslana úr haldi. Símasamband sé við Talibanana og unnið sé að því að semja við mannræningjana. Lík eins suður-kóreumannsins fannst sundurskotið í Ghazni héraði í gær, en þar var gíslunum rænt síðastliðinn fimmtudag. Stjórnvöld í Suður-Kóreu fordæma morðið og krefjast lausnar gíslanna tafarlaust. Lögreglumaður sem vildi ekki láta nafns síns getið við AP fréttastofuna sagðist hafa heimildir fyrir því að maðurinn hefði verið veikur og ekki getað gengið, þess vegna hafi hann verið myrtur. Fréttir af morðinu hafa valdið reiði margra suður-kóreumanna og málið hefur vakið hörð viðbrögð í landinu. Mótmælendur í Seoul hafa í framhaldi af mannráninu farið fram á að Bandaríkin og Suður-Kórea dragi allt herlið sitt frá Afghanistan, en það er einmitt krafa mannræningjanna, sem vilja auk þess að talibanar í afgönskum fangelsum verði látnir lausir. Stjórnvöld í Suðurkóreu höfðu tilkynnt fyrir mannránið að 200 hermenn í landinu yrðu kallaðir heim á þessu ári. Yfirvöld í Afghanistan segja samningaumleitanir á þessu stigi snúast um lausn átta gíslanna. Einn yfirmanna talibana Mansour Dadullah segir á fréttavef BBC að mannrán muni halda áfram í landinu þar sem þau séu mjög góð aðferð til að fá ýmsum kröfum framgengt. Vegna tíðra mannrána í Afganistan hefur lögreglan í Kabúl bannað erlendum ríkisborgurum að fara frá borginni án þess að fá til þess sérstakt leyfi.
Mest lesið Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Erlent Tólf prósent Íslendinga á bótum Innlent Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Innlent Hraðlygni leiðsögumaðurinn ekki einsdæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“ Innlent Næsta skref að úttekt verði gerð á umfangi bælingarmeðferða Innlent Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Innlent Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum Innlent Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent Fleiri fréttir Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Sjá meira