Erlent

Sprengja sprengd á flugvellinum á Ibiza

Spænskir lögreglumenn sprengdu sprengju á flugvellinum á Ibiza fyrir hádegi í dag. Flugvöllurinn hafði verið rýmdur skömmu áður en sprengjan sprakk en sprengjuhótun var send til spænsks dagblaðs í nafni ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska. Sprengjusveit lögreglunnar fann sprenguna og sprengdu hana á staðnum án þess að tjón hlytist af.

Lögreglan á Spáni hefur verið á varðbergi undanfarið í kjölfarið á því að ETA aflýsti vopnahléi sem hafði verið í gildi, þann 5. júní síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×