Berklamaðurinn sér eftir flugferðunum Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 1. júní 2007 14:57 Andrew Speaker heilsar fréttamanni ABC þar sem hann er í einangrun í sérstökum klefa sem hreinsar andrúmsloftið. MYND/AP
Bandarískur berklasjúklingur sem ferðaðist smitaður með tveimur farþegaflugvélum yfir Atlantshafið hefur beðist afsökunar í sjónvarpsþætti á að hafa mögulega stofnað öðrum farþegum í hættu. Maðurinn, Andrew Speaker, sem er lögmaður á fertugsaldri, flaug til Parísar til að gifta sig í síðasta mánuði. Hann vissi að hann væri með berkla, en ekki að hann smitaði. Læknar höfðu ekki bannað honum að ferðast. Speaker var með grímu í viðtalinu í þættinum Good Morning America á ABC, og sagðist hafa hljóðupptöku sem sannaði að honum hefði einungis verið ráðlagt frá því að ferðast, en ekki bannað það. Læknar sögðu honum að engum í kringum hann væri hætta búin vegna smits, ekki heldur konu hans og dóttur. Viðtalið var tekið í Denver þar sem Speaker er í sóttkví. Bandarísk og evrópsk yfirvöld hafa reynt að hafa upp á farþegum sem voru í flugunum með honum. Speaker er með sjaldgæft afbrigði berkla sem er ónæmt fyrir lyfjum. Smithætta er lítil samkvæmt upplýsingum frá Sjúkdómaeftirliti Evrópu. Það mælir þó með að fólk sem sat í um eins meters radíus frá manninum í vélinni láti athuga sig. Speaker fór til Parísar frá Atlanta 12. maí þar sem hann gifti sig og fór síðan í brúðkaupsferð um Evrópu. Hann kom frá Prag til Montreal í Kanada 24. maí og keyrði til Atlanta þar sem hann var settur í sóttkví undir fyrstu alríkisfyrirskipun þess efnis frá árinu 1963.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira