Innlent

Háskólaskýrslunni breytt í lokavinnslu

Ríkisendurskoðun breytti úttekt sinni á gæðum háskólanna á milli frumskýrslu og lokaskýrslu. Felldar voru út mælistikur sem voru Háskóla Íslands óhagstæðar. Fullyrt er af Háskólanum í Reykjavík að þetta hafi verið gert þvert á ráðleggingar erlendra sérfræðinga.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Háskólana kom Háskóli Íslands best út. Hann var bæði ódýrastur og bestur útfrá akademísku sjónarmiði. Einkareknu háskólarnir eru ekki allskostar sáttir við aðferðafræðina sem beitt var við þennan samanburð.

Sem dæmi má nefna að brottfall úr námi er mest í Háskóla Íslands og kemur það fram í skýrslunni. Aftur á móti er þetta brottfall ekki reiknað inn í heildarmat á skilvirkni námsins, en slíkt myndi vissulega hafa áhrif á stöðu Háskóla Íslands.

Annað sem veldur kurr er að Ríkisendurskoðun sendi út frumsýrslu til yfirlestrar en breytti henni síðan og birti án þess að lokaskýrsla kæmi fyrir augu skólamanna áður.

þar var til dæmis gerð breyting á akademískri stöðu lagadeilda en í frumskýrslu kom Háskólinn í Reykjavík þar best út. Í lokaskýrslu var hins vegar búið að fella út eina mælistikuna, dugnað við að ná í fjármagn til rannsókna eða sjálfsaflafé. Eftir breytingu var Háskóli Íslands kominn á toppinn í þessu mati. Í tilkynningu frá HR er bent á þetta og segir þar: "Ríkisendurskoðun tók þá ákvörðun að sleppa þessum mikilvæga mælikvarða úr endanlegu mati á akademískri stöðu þvert á ráðleggingar erlendra sérfræðinga". Þessir sérfræðingar voru Ríkisendurskoðun innnan handar.

Ríkisendurskoðandi vísar gagnrýni á þetta gæðamat á bug. Í skeyti til fréttastofu rökstyður Ríkisendurskðandi þessa tuilteknu breytingu með því að mælikvarðinn hafi ekki verið talin "..gefa rétta og sanngjarna mynd af gæðum

rannsókna, vegna mismunandi tekjumöguleika skólanna."

Þá bendir ríkisendurskoðandi á að ýmsar breytingar hafi verið gerðar frá drögum til lokaskýrslu og fullyrt að það hafi ekki komið einum skóla betur en öðrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×