Get ekki neitað því að ég er mjög sár 23. október 2007 03:30 Auðun Helgason.
Varnarmaðurinn Auðun Helgason mun ekki spila með FH á næstu leiktíð. Samningur hans við félagið er á enda runninn og FH mun ekki bjóða honum nýjan samning. Auðun þarf þrátt fyrir það ekki að örvænta þar sem nokkur félög í Landsbankadeildinni geta vel hugsað sér að nýta krafta hans og svo hefur KA boðið Auðuni að spila og þjálfa liðið. „Ég verð að segja að ég er nokkuð stoltur yfir því hversu mikinn áhuga nokkur félög hafa sýnt á því að fá mig til starfa. Ég er augljóslega ekki alveg gleymdur og menn hafa enn einhverja trú á mér, sem er gott," sagði Auðun en hann ætlar að taka ákvörðun í sínum málum á næstu dögum. „Það er í raun bara KA sem hefur boðið mér þjálfarastarf. Svo hafa þó nokkuð mörg lið haft samband en ég hef reynt að einbeita mér að 2-3 valkostum. Það er að berjast í mér hvort ég vilji ekki spila áfram í toppliði í úrvalsdeildinni og ég hef enn það mikinn metnað að mér sýnist á öllu að ég muni velja þann möguleika að þessu sinni. Annars er tilboðið fyrir norðan mjög spennandi og krefjandi og kitlar nokkuð," sagði Auðun, sem hefur stefnt að því síðustu tvö ár að prófa að fara út í þjálfun. Þegar Auðun kom heim til FH á sínum tíma áttu flestir von á því að hann myndi klára sinn feril í Hafnarfirðinum. Hlutirnir hafa aftur á móti ekki alveg gengið upp hjá honum eftir heimkomuna, hann hefur bæði verið mikið meiddur og svo hefur leiðin í liðið alls ekki verið greið þar sem Tommy Nielsen og Sverrir Garðarsson hafa leikið vel í miðvarðarstöðunum. „Það er eitthvað að gerast í Hafnarfirðinum sem veldur mér miklum vonbrigðum. Ég hafði alltaf hugsað mér að enda minn feril í Hafnarfirði enda er ég mikill FH-ingur. Það verður því miður ekki þannig. Ég spjallaði vel og lengi við Pétur, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar, og því miður er ekki einhugur innan stjórnarinnar um að halda þessu samstarfi áfram. Ég hef þess utan ekkert heyrt í þjálfaranum. Ég hafði áhuga á að vera áfram en FH vill ekki halda mér," sagði Auðun en er hann sár út í FH? „Já, ég get ekki neitað því að ég er mjög sár yfir þessu og þykir það leiðinlegt."
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira