Íslenski boltinn

Get ekki neitað því að ég er mjög sár

Auðun Helgason.
Auðun Helgason.
Varnarmaðurinn Auðun Helgason mun ekki spila með FH á næstu leiktíð. Samningur hans við félagið er á enda runninn og FH mun ekki bjóða honum nýjan samning. Auðun þarf þrátt fyrir það ekki að örvænta þar sem nokkur félög í Landsbankadeildinni geta vel hugsað sér að nýta krafta hans og svo hefur KA boðið Auðuni að spila og þjálfa liðið.

„Ég verð að segja að ég er nokkuð stoltur yfir því hversu mikinn áhuga nokkur félög hafa sýnt á því að fá mig til starfa. Ég er augljóslega ekki alveg gleymdur og menn hafa enn einhverja trú á mér, sem er gott," sagði Auðun en hann ætlar að taka ákvörðun í sínum málum á næstu dögum.

„Það er í raun bara KA sem hefur boðið mér þjálfarastarf. Svo hafa þó nokkuð mörg lið haft samband en ég hef reynt að einbeita mér að 2-3 valkostum. Það er að berjast í mér hvort ég vilji ekki spila áfram í toppliði í úrvalsdeildinni og ég hef enn það mikinn metnað að mér sýnist á öllu að ég muni velja þann möguleika að þessu sinni. Annars er tilboðið fyrir norðan mjög spennandi og krefjandi og kitlar nokkuð," sagði Auðun, sem hefur stefnt að því síðustu tvö ár að prófa að fara út í þjálfun.

Þegar Auðun kom heim til FH á sínum tíma áttu flestir von á því að hann myndi klára sinn feril í Hafnarfirðinum. Hlutirnir hafa aftur á móti ekki alveg gengið upp hjá honum eftir heimkomuna, hann hefur bæði verið mikið meiddur og svo hefur leiðin í liðið alls ekki verið greið þar sem Tommy Nielsen og Sverrir Garðarsson hafa leikið vel í miðvarðarstöðunum.

„Það er eitthvað að gerast í Hafnarfirðinum sem veldur mér miklum vonbrigðum. Ég hafði alltaf hugsað mér að enda minn feril í Hafnarfirði enda er ég mikill FH-ingur. Það verður því miður ekki þannig. Ég spjallaði vel og lengi við Pétur, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar, og því miður er ekki einhugur innan stjórnarinnar um að halda þessu samstarfi áfram. Ég hef þess utan ekkert heyrt í þjálfaranum. Ég hafði áhuga á að vera áfram en FH vill ekki halda mér," sagði Auðun en er hann sár út í FH? „Já, ég get ekki neitað því að ég er mjög sár yfir þessu og þykir það leiðinlegt."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×