Sameinuðu þjóðirnar veita fé í uppbyggingu skólastarfs í Jórdaníu og Sýrlandi 28. júlí 2007 18:57
Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að veita tæpum 130 milljónum bandaríkjadala, andvirði tæpra átta milljarða íslenskra króna í uppbyggingu skólastarfs fyrir börn íraskra flóttamanna í Sýrlandi og Jórdaníu. Yfir hundrað og fimmtíu þúsund írösk flóttamannabörn búa þar og eiga þess ekki kost að ganga í skóla. Fjármagn Sameinuðu þjóðanna fer fyrst og fremst í að hjálpa yfirvöldum í Sýrlandi og Jórdaníu að byggja upp skóla, þjálfa kennara, greiða skólagjöld og útvega bækur fyrir þúsundir íraskra flóttamannabarna sem hafa flúið með fjölskyldum sínum vegna stríðsástandsins í Írak. Yfir fimm hundruð þúsund írösk börn á skólaaldri eru í Sýrlandi og Jórdaníu og hafa 150 þúsund þeirra ekki aðgang að skólakerfinu. Hátt í þúsund flóttamenn hafa flúið til Jórdaníu síðustu ár og hafa yfirvöld þar í landi varla bolmagn til að veita flóttamönnum grunnþjónustu vegna fjárskorts. Þau hafa ítrekað kallað eftir meira fjármagni til að koma til móts við þarfir flóttamannanna. Domoua Abdel Kadir flúði til Jórdaníu frá Írak fyrir þremur árum til að leita læknisaðstoðar fyrir dóttur sína. Hennar aðstæður varpa ljósi á hvernig komið er fyrir fjölmörgum Írökum sem hafa þurft að flýja til nágrannaríkjanna. Domoua vinnur fyrir sér með því búa til körfur sem hún selur á markaðnum en það dugar tæplega fyrir mat. Dóttir hennar Sally lést í byrjun þess árs og var grafin rétt fyrir utan Amman. Nú óttast Domoua að sonur hennar Jamal komist ekki í skóla í Jórdaníu nema þau hafi dvalarleyfi. Fyrir utan þann fjölda flóttamanna sem flúið hefur til Jórdaníu hefur ein og hálf milljón Íraka flúið til Sýrlands. Fjögur hundruð þúsund Írakar hafa flúíð til Egyptalands og Líbanon.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjá meira