Fjórir létust í þyrluslysi í Arisona ríki 28. júlí 2007 12:12
Fjórir létust þegar tvær þyrlur í eigu bandarískra sjónvarpsstöðva í Arisona ríki hröpuðu til jarðar í gær. Þyrlurnar hröpuðu báðar á skólalóð í borginni Phoenix eftir að þær höfðu verið að mynda lögregluna elta vörubíl. Þyrlurnar tvær sem hröpuðu voru í eigu svæðissjónvarpsstöðvanna í borginni Phoenix. Þær voru að mynda lögregluna elta vörubíl í miðborg Phoenix í beinni útsendingu og flugu mjög nálægt hvor annarri. Talið er að þær hafi rekist hvor á aðra og hrapað til jarðar. Eldur kom upp á svæðinu eftir að þær skullu til jarðar og svartan reyk lagði yfir miðborgina. Engan annan sakaði þegar þær hröpuðu. Í þyrlunum voru tveir fréttamenn og tveir flugmenn og létust þeir samstundis. Áhorfendur gátu ekki séð þegar slysið átti sér stað þar sem myndavélunum var snúið niður og sambandið rofnaði. Þyrlur frá fimm öðrum sjónvarpsstöðvum í Phoenix voru að mynda eltingarleik lögreglunnar í beinni útsendingu ásamt þyrlunum sem hröpuðu. Þegar slysið varð hættu þær að mynda eltingarleikinn og mynduðu slysið í staðinn. Allt tiltækt slökkvilið í borginni var kallað á vettvang til að slökkva eldinn. Ökumaður vörubílsins sem allir veittu eftirför var handtekinn skömmu síðar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjá meira