Steðjað í stórlax á Kólaskaga 10. apríl 2007 13:00 Hilmar Hansson sæll og glaður með einn 25 punda lax sem hann veiddi í Yokanga. „
Menn eru farnir að fara til Rússlands. Það eru allir komnir með upp í kok af verðinu hérna heima," segir Hilmar Hansson sem er einn þekktasti veiðimaður landsins. Sturla Birgisson í Yokanga geta menn alltaf átt von á því að ná í þann stóra. Þessi lax er 38 pund. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að veiðileyfi í Langá, þar sem er staðarhaldari Ingvi Hrafn Jónsson sjálfur, hefur hækkað um hundrað prósent á fimm árum. Ingvi Hrafn sagði að meðaljóninn gæti einfaldlega gleymt því að fara í laxveiði á besta tíma. Nema í boði stórfyrirtækja. Þarna væru markaðsöflin einfaldlega að verki og lítið við því að segja. Á Reykjavíkurflugvelli í byrjun júní eru allt upp í tíu einkaþotur sem ferja hingað forfallna fluguveiðimenn og auðkýfinga. Mikil hækkun á verði veiðileyfa er almenn - ekki bara bundin við Langá. Hilmar segir urg í mönnum sem lýsir sér í því að menn hafi verið að færa sig meira yfir í silungsveiði. Og svo þessi möguleiki sem er að fara út fyrir landsteina til veiða - til dæmis á Kólaskagann í Yokanga á sem er einhver besta stórlaxaá veraldar. Sjálfur var hann þar á ferð í fyrra ásamt Ingólfi Davíð Sigurðssyni og Guðjóni Árnasyni. Þeir veiddu 106 laxa og voru tíu prósent þeirra yfir 20 pund. „Þarna eru menn að fá miklu betri veiði fyrir minna verð. Og það sem öllu máli skiptir - sénsinn á stóra fiskinum. Sem ekki er lengur hér á Íslandi nema í örfáum ám." Hilmar. Þetta er algert ævintýri en menn eru fluttir til og frá veiðistað á þyrlum. Stórlaxinn er á undanhaldi á Íslandi, hefur verið beint strik niður undanfarin ár að sögn Hilmars meðan smálaxinn er að koma upp. „Það er annað að eiga möguleika á því að fá 40 til 50 punda lax í stað tíu punda hér heima, ef þú ert heppinn." Og stór hópur Íslenskra veiðimanna steðjar nú til Rússlands. Tugir manna eru búnir að bóka sig í veiði þar í sumar. Hilmar hefur farið í fjórgang. Hilmar er ekki alveg hlutlaus, þó engin ástæða sé til að draga orð hans í efa, en hann var mynstraður til að vera umboðsmaður Frontier, stærsta veiðiskrifstofa heims, hér á Íslandi. Og þeir bjóða upp á veiði víðsvegar um heim allan. Þarna gista hinir vonglöðu veiðimenn en síðast þegar Hilmar fór veiddust 106 laxar þar af tíu prósent yfir 20 pund. „Þetta er ótrúlegt ævintýri. Þarna ferðast menn um á þyrlum. Úti í auðninni. Engir bílvegir. Flogið á veiðistað að morgni og svo eru menn sóttir um kvöld," segir Hilmar. Verðið sem menn eru að greiða er 300 þúsund krónur fyrir viku. Sem að sögn Hilmars er sambærilegt verð og tveir dagar kosta í sæmilegri á á Íslandi.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira