Kona kjörin forseti Indlands í fyrsta sinn Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 21. júlí 2007 13:47
Fyrsti kvenforseti Indlands tók við völdum í dag eftir að hljóta tvo þriðju atkvæða í kosningum. Kjör Pratibha Patil þykir táknrænt og sigur fyrir konur í landinu sem verða fyrir mikilli mismunun af völdum kynferðis. Mikil fagnaðarlæti brutust út á Indlandi í morgun þegar tilkynnt var að Patil hefði verið kjörin fyrsti kvenforseti landsins. Patil er 72 ára gömul flokkskona Congressflokksins og fékk fleiri atkvæði en varaforseti landsins, sem einnig bauð sig fram til embættisins auk leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Þó nokkrar konur eru nú í áhrifastöðum í indverskum stjórnmálum, en Indira Gandhi var fyrsti og eini kvenforsætisráðherra landsins. Dóttir hennar er nú leiðtogi Congress flokksins en Patil þykir sýna Gandhi fjölskyldunni mikla tryggð. Ekki eru þó allar konur ánægðar með valið á Patil. Gagnrýnendur segja að hún hafi verið dregin fram úr skugga Congress flokksins. Meðlimir flokksins hafi ekki vitað hver hún var fyrir kosningarnar. Seema Mustafa fréttamaður Asian Age dagblaðsins segir að Patil hafi einungis verið valin af því hún er kona, en hins vegar sé hún alls ekki fulltrúi nútímakonunnar þar sem hún tali fyrir gamaldags gildum og gangi sem dæmi með höfuðslæðu. Ólíkt fyrri forsetakosningum olli baráttan nú miklum deilum þar sem ásakanir gengu á víxl milli þingflokka um allt frá fjármálaóreiðu til ásakana um mútur.
Mest lesið Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Innlent Fleiri fréttir Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Sjá meira