Heimild til að túlka Genfarsáttmálann 23. september 2006 07:30 John Mccain öldungadeildarþingmaður Leiðtogi andófshóps innan Repúblikanaflokksins segist hafa fengið því framgengt að pyntingar verði ekki framar stundaðar á vegum bandarískra stjórnvalda. MYND/AP
George W. Bush Bandaríkjaforseti náði í gær samkomulagi við hóp repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings um frumvarp að lögum um sérstaka herdómstóla, sem eiga að fjalla um mál fanga bandaríska hersins við Guantanamo á Kúbu. Samkomulagið felur meðal annars í sér að Bandaríkjaforseti fær lagalega heimild til þess að túlka ákvæði Genfarsáttmálanna eins og honum sjálfum þykir réttast. Á hinn bóginn eru í frumvarpinu skýr ákvæði um það hvað teljist „alvarleg brot" gegn Genfarsáttmálunum, sem ekki eru heimil, og er þar á meðal að finna skilgreiningu á pyntingum og býsna þrönga skilgreiningu á því hvað teljist vera „alvarlegur andlegur sársauki og þjáning". Bush lýsti í gær ánægju sinni með samkomulagið, sem hann sagði tryggja það að leyniþjónustan CIA gæti áfram „yfirheyrt hættulegustu hryðjuverkamenn heims og náð í leyndarmál þeirra." Öldungadeildarþingmaðurinn John McCain sagðist á hinn bóginn ánægður með að hafa náð fram því markmiði að verja Genfarsáttmálana. „Það verða engar frekari pyntingar," sagði hann. Verði frumvarpið samþykkt í þinginu í næstu viku geta repúblikanar verið samstíga í kosningabaráttunni eftir að hafa deilt hart undanfarnar vikur.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira