Fótbolti er skemmtilegur 11. júní 2006 02:24
Fyrirgefðu fröken, en værir þú nokkuð til að biðja flugstjórann að spyrja flugturninn hvernig leikurinn í dag fór, sagði ég sundarhátt á leiðinni heim frá Þýskalandi síðdegis. ,,Sjálfsagt'' og svo kom hún með fréttirnar: England 1, Paragúæ 0, og hver skoraði spurði ég: ,,Þeir sögðu það ekki, því miður.'' Þannig er England komið með þrjú stig, og kemur ekki á óvart, úrslit eftir bókinni og þeir skoruðu ekki einu sinni markið sjálfir. Svíar hljóta að sama skapi að vera svekktir eftir daginn, javla! Þeir reyndu og reyndu, en alls ekkert gerist, 1 stig, en Trinidat fær 12 stig einsog í Júróvison fyrir að hanga á þessu einum færri. Það er svo geðveikt hreinlega að sjá Fílabeinstrendinga, líktog einhver kallaði þá í dag, samanber Skagstrendinga, baráttulið og héngu í sterkum Argentínumönnum. Ég hef ekki verið mikill aðdáandi Drogba, en mikið andskoti er maðurinn duglegur á vellinum, og allt liðið raunar, sterkir, leiknir og áræðnir í meira lagi, þeir eiga mikið hrós skilið fyrir að gera þriðja leikinn í kvöld að stórkostlegri skemmtun lengstum. Þetta HM er strax orðið stórmót, ég sá ágætan mann rifja upp gríska harmleikinn á EM í blöðunum í dag, hvernig þeir gersamlega gerðu útum alla ánægju sem getur stafað af fóboltaleiknum, eyðileggingarfótbolti er gott orð, en um leið var þetta gagnleg taktík, heldur betur. En hvernig Svíinn Sven getur verið ánægður með leik sinna manna í dag, er óskiljanlegt, frábært að fá þrjú stig, en ég var guðslifandi feginn að þurfa ekki að horfa á nema upprifjun úr honum og lesa ensku pressuna, ef þetta lið fer langt á HM þá er gríska ævintýrið komið út aftur, annar hluti. Englendingar eru með frábæra miðju, sterka vörn en hitt er rubbish. Ég spenntur fyrir Hollendingunum á morgun, þótt Van Basten sé algerlega óreyndur þjálfari þá er hann að gera það sama og Klinsmann, treysta ungum, áhugasömum leikmönnum fyrir partíinu, frekar en að leyfa gömlum hundum að eyðileggja stemninguna. Á morgun verður góður dagur, fótbolti er skemmtilegur.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Sjá meira