Erlent

Þurfa tíma

Íranar krefjast þess að Bandaríkjamenn sýni þolinmæði á meðan þeir ákveða hvort þeir taki tilboði þeirra og hætti við auðgun úrans. Bush Bandaríkjaforseti vill svar strax.

Forseti Írans sagði Bandaríkin og Evrópuríki geta búist við svari um miðjan ágúst. Íranar hvöttu í morgun Bandaríkjamenn til að sýna þolinmæði í málinu, um stórt og mikilvægt mál væri að ræða og þess vegna þyrfti að tala um það áður en ákvörðun væri tekin. George Bush Bandaríkjaforseti sagði um málið í dag að Íranar ætluðu sér of langan tíma, nokkrar vikur ættu að vera nógu langur tími til að gefa svar. Hingað til hafa Íranar útilokað að gefa upp rétt sinn til að auðga úran. Það væri þeirra réttur og vilji þjóðarinnar. Bandaríkjamenn hafa margítrað að það komi ekki til greina þó Íranar hafi sagt að það yrði aðeins gert í friðsamlegum tilgangi. Grunsemdir Bandaríkjamanna minnkuðu síðan ekki þegar Íranar juku framleiðslu sína á eldflaugum sem borið geta kjarnaodda. Bandaríkjamenn hafa sagt ekki útilokað að ráðist verði á landið hætti Íranar ekki við áætlanir sínar en Íranar hafa á móti lofað að það verði þeim ákaflega dýrt, láti þeir verða af árásunum. Hvernig sem fer segja stjórnmálaskýrendur líklegt að Bandaríkjamenn og Evrópubúar bíði rólegir fram í ágúst þegar Íranar skýra frá áætlunum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×