Lítil trú á stjórninni 30. mars 2006 13:38
Stuðningsmenn hægriflokka í Ísrael spá því að samsteypustjórn undir forystu Kadima og Olmerts verði skammlíf, og enn skammlífari verði Palestínumönnum afhentur hluti af Vesturbakkanum. Ismail Haniya, nýsvarinn forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, sagðist í gær vonast til að friður myndi nást á milli Ísraela og Palestínumanna. Hann sagði þó friðarferlið vera alfarið í höndum Ísraela sem myndu ekki fá að ákveða einir landamæri Ísraels eins og þeir hafa sagst ætla að gera. Þá sagði hann Hamas stefna að stofnun Palestínuríkis með Jerúsalem sem höfuðborg. Haniyeh sagði þó í gærkvöldi að hann myndi veita Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, svigrúm til að reyna samningaviðræður við Ísraela óskaði hann eftir því. George Bush forseti Bandaríkjanna bauð í gær Olmert í heimsókn til Bandaríkjanna, strax og hann hefur myndað nýja ríkisstjórn en líklegt þykir að það verði með Verkamannaflokknum og öðrum minni flokkum. Olmert hefur að undanförnu kynnt áætlun um að fækka minni landnemabyggðum Gyðinga á Vesturbakkanum en stækka önnur. Íhaldsmenn segja að almenningur muni ekki fylgja Olmert í blindni og spá stjórninni skammlífi. Kadima telur að það taki minnst ár að rýma stöku landnemabyggðir á Vesturbakkanum, stækka aðrar, og ganga frá landamærum ríkis Palestínumanna. Viðbúið er þó að Hamas streytist á móti en Bandaríkin Evrópusambandið, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar hafa sagt að Hamas verði að viðurkenna ríkisrétt Ísraels, hætta ofbeldi og taka þátt í friðarviðræðum. Að öðrum kosti verði öll aðstoð felld niður.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Sjá meira