Þriðjudagur, þrír dagar í HM 6. júní 2006 10:11
Hver er stærsta frétt vikunnar? Á mælikvarða stjórnmálanna hér í túninu heima er það sjálfsagt afsögn Halldórs Ásgrímssonar, á heimsmælikvarða er ein stærsta fréttin hinsvegar að HM byrjar á föstudaginn, eftir slétta þrjá daga. Ég talaði við Júlíu Sigursteinsdóttur í Munchen síðdegis í dag, allt að gerast í borginni, búið að setja upp risasjónvörp, sjónvörp af miðlungsstærð og lítil sjónvörp um alla borg, draga allar bjórdælur sem virka á flot og heimamenn geta ekki beðið eftir því að byrja að verja heiður sinn í opnunarleiknum á móti Costa Ríka. Þeir eiga ekki einu sinni hér, frekar en við Íslendingar og kannski lítil hefð fyrir því að eiga í stríði á erlendri grundu, ef nota má það orð um viðureignina við blessaða sameinaða Þjóðverjana. Ballack og co komu til Berlínar í dag og honum var tekið einsog Jesú Kristi í jakkafötum. Svo er það stríðið útaf vændiskonununum, hvað á FIFA að gera annað en Sambandið hefur þegar gert, lýsa yfir fordæmingu og vandlætingu á því að óprúttnir aðilar skuli flytja allt að 70.000 gleðikonur til Þýskalands til að skemmta gestum og gangandi. Varla er hægt að handtaka allar ungar konur með varalit og augnskugga sem koma yfir landamærin. Þessi málatilbúnaður samtaka útum allan heim er hinsvegar frábær, hann vekur athygli á því skelfilega hlutskipti sem margar konur búa við, því hugmyndafræðin um hamingjusömu hóruna er bara til í skáldskap eftir Paolo Coelo. Að því sögðu, er fótboltinn það sem mestu máli skiptir í þessari viku, og ef okkur auðnaðist að fá vitringana þrjá til að koma til Munchen á föstudaginn með gjafir, myndi ég biðja þá í leiðinni að segja mér hvaða heillastjarna er yfir hvaða liði í keppninni. Ég flýg til hinnar helgu fótboltaborgar Munchen síðdegis í dag og byrja að afla frétta og senda heim, ef það verður þá eitthvert rúm í fjárhúsinu fyrir annað en fréttir af Framsóknarflokknum og niðurlægingu hans.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Sjá meira