Fótbolti

Gerrard ánægður með nýja stöðu

Gerrad í leiknum gegn Ungverjum
Gerrad í leiknum gegn Ungverjum MYND/AP
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og landsliðsmaður Englands segist hafa fundið sig vel í nýju hlutverki í enska landsliðinu en hann spilaði í stöðu Wayne Rooney í 3-1 sigri á Ungverjum í gær á Old Trafford.

"Það var mikil pressa á mér að fara að leika stöðu Wayne Rooney í liðinu, en ég fann mig vel og var sáttur við mína frammistöðu. Frammistaða okkar í þessum leik var frábær. Frank Lampard var mjög góður og mataði okkur vel sem vorum fyrir framan. En það sem skipti mestu máli var að við unnum þennan leik öruggleg. Ég er nokkuð bjartsýn á framhaldið," sagði Gerrard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×