Fótbolti

Rosicky meiddur á læri

Rosicky (fremstur) fagnar með félögum sínum
Rosicky (fremstur) fagnar með félögum sínum MYND/AP

Tomas Rosicky sem í síðustu viku skrifaði undir við samning við Arsenal mun missa af næsta vináttuleik með Tékkum vegna meiðsla í læri. Arsenal greiddi fyrir hann 6.8 milljónir punda.

Þessi öflugi miðvallarleikmaður meiddist í 2-0 sigurleik Tékka á Sádi Arabíu á föstudaginn. Þessi tíðindi voru ekki gleðiefni fyrir þjálfara Tékka, Karel Brueckner, sem er einnig án Karel Vladimir Smicer.

Þar að auki hefur hinn stóri Jan Koller ekki náð fyrra formi en hann gekkst undir hnéaðgerð fyrr í vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×