Fótbolti

Ajax ræða við Davids

Forráðamenn Ajax í Hollandi hafa talað við Edgar Davids um að koma og leika með þeim á næstu leiktíð. Leikmaðurinn spilaði með Tottenham í vetur en vill halda heim til Hollands eftir aðeins ársveru á Englandi.

Samningur hans við Tottenham rennur reyndar ekki út fyrr en eftir næsta tímabil en líklegt er að Ajax þurfi ekki að greiða mikið fyrir hann eða jafnvel ekki neitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×