Fótbolti

Phil Neville inn í varahóp enska liðsins

Nigel Reo-Coker hefur dregið sig út úr varahópi enska landsliðsins vegna bakmeiðsla. Í hans stað kemur Phil Neville inn í hópinn. Neville mun mæta á æfingavöll enska liðsins að Hertfordshire á morgun og mun þar hitta fyrir þá Scott Carson, Michael Dawson, Jermain Defoe og Andrew Johnson. Þeir eru allir í varahópi enska landsliðsins og munu koma inn í aðalhópinn ef einhver leikmaður verður meiddur fyrir fyrsta leik liðsins sem verður á móti Paraguay þann 10. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×