Fótbolti

Gana

Ganamenn eru í E riðli með Tékkum, Ítölum og Bandaríkjamönnum. Það er óhætt að segja að róðurinn eigi eftir að verða ansi þungur fyrir Ganamenn. Þeir eru í 48. sæti á styrkleikalista FIFA, langt á eftir keppinautum sínum.

Ganamenn eru með skemmtilegt lið og nokkra leikmenn sem leika með stórliðum Evrópu. Þeir lentu í frekar erfiðum riðli og ef þeir komast upp úr honum verður það að teljast sigur fyrir þá. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir taka þátt í lokakeppninni.

Serbinn Radomir Dujkovic er alvanur að stjórna liðum frá Afríku. Hann tók við Ganamönnum í desember 2004 eftir að hafa stýrt Rúanda í sinni Afríkukeppni.

Dujkovic gerði rótækar breytingar á liði sínu frá því sem verið hafði í Afríkukeppninni. Hann skipti út tíu leikmönnum. Michael Essien, Sulley Muntari og Asamoah Gyan koma allir inn eftir að hafa verið meiddir þegar Afríkukeppnin fór fram.

Michael Essien leikmaður Chelsea og dýrasti Afríski knattspyrnumaður allra tíma er þeirra mikilvægasti maður. Hann myndar gott tríó með Stephen Appiah og Sulley Muntari.

Fyrirliði: Stephen Appiah

Lykilmaður: Michael Essien

Gæti slegið í gegn: Derek Boateng



Leikmannahópurinn:

1 Sammy Adjei

2 Hans Sarpei

3 Asamoah Gyan

4 Samuel Kuffour

5 John Mensah

6 Emmanuel Pappoe

7 Illiasu Shilla

8 Michael Essien

9 Derek Boateng

10 Stephen Appiah

11 Sulley Muntari

12 Alex Tachie-Mensah

13 Habib Mohamed

14 Matthew Amoah

15 John Pantsil

16 George Owu

17 Dan Quaye

18 Eric Addo

19 Razak Pimpong

20 Otto Addo

21 Issah Ahmed

22 Richard Kingston

23 Haminu Dramani




Fleiri fréttir

Sjá meira


×