"Bright Nights" í Árnesi 18. maí 2006 13:58
Rafræn Reykjavik hefur verið iðinn við kolann í vetur að kynna og bjóða íslendingum upp á fyrsta flokks raftónlistarmenn. Nú hafa þeir sett saman eina allsherjar listahátíð sem mun fara fram í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða og Gnjúpverjahreppi helgina 9-11 júní. Sett hefur verið saman ein glæsilegasta dagskrá sem sést hefur á Íslandi, bæði af íslenskum sem erlendum listamönnum, má þar nefna bönd eins og Sometime og Dr.Disco Shrimp, einnig munu koma fram frá Íslandi: Hermigervill, Biggi veira úr GusGus, Kiki ow, Reykjavik swing orchestra, Ruxpin, Frank murder, Mr.silla og margir fleiri. Erlendu listamennirnir sem fram koma eru ekki af verri endanum, Sebestian Tellier frá Frakklandi, Daedelus frá Californiu, Judith Juillerat frá Sviss, Misc. frá Köln, Ada frá Köln og síðast en ekki síst kóngur og drottning "electro" tónlistarinnar Ellen Allien & Apparat frá Berlin. Alls eru um fjörtíu listamenn sem koma fram á þessum þremur kvöldum.Skipulag og tjaldsvæðiHátíðinni er skipt niður á þrjá daga 9-11. júní frá kl. 18:00 á föstudegi til 01:00 aðfararnótt mánudags. Haldnir verða tónleikar á litlu sviði á daginn og þar mun tónlist sem hentar veðráttunni vera spiluð. Um kvöldmatarleitið verður tónleikahaldið fært inn í félagsheimilið, þar sem haldnir verða magnaðir tónleikar til klukkan þrjú eftir miðnætti.Nýlistasafnið mun standa fyrir ýmsum viðburðum s.s. videolist, ljósmyndasýningum og fleira.Einnig verður á svæðinu markaður sem margir af efnilegustu hönnuðum Íslands verða að selja varning sinn. Allt frá skartgripum til nudds verður á boðstólnum.Tjaldstæði er 20 metrum frá félagsheimilinu þar sem er grillaðstaða, sturtur, salernisaðstaða og heitur pottur. Einnig er mjög góð sundlaug u.þ.b. 50 metra frá svæðinu. Árnes er á suðurlandi ca. 90 km frá Reykjavík og er umkringt af fallegri náttúru.Miðaverð er 7500 kr. og er tjaldstæði innifalið i verðinu og verða miðarnir fáanlegir í 12 Tónum og Smekkleysubúðinni.Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar
Lífið Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Sjá meira