Ítalskir hermenn koma til Líbanons 2. september 2006 12:09
Ítalskir hermenn komu til Suður-Líbanons í dag til að styrkja friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna þar. Með því glæðast vonir um að takast megi að koma í veg fyrir að átök brjótist út að nýju í Líbanon. Ítölsku hermennirnir komu af hafi á gúmbátum og í þyrlum eftir stutta ferð yfir Miðjarðarhafið um borð í flugmóðurskipinu Giuseppe Garibaldi, eina flugmóðurskipi Ítala. Fyrir er í Líbanon um tvö þúsund manna lið Sameinuðu þjóðanna sem hefur beðið eftir liðsauka síðan samið var um vopnahlé í Líbanon fjórtánda ágúst. Ætlunin er að friðargæsluliðar verði alls um fimmtán þúsund. Þegar dagarnir fóru að líða án þess að liðsauki kæmi, fóru menn að óttast að átök kynnu að brjótast út á ný. Áætlað er að alls komi 880 ítalskir hermenn til hafnarborgarinnar Tírus í dag auk tvö hundruð hermanna sem fara í flugi til Beirút. Um er að ræða hermenn, verkfræðinga, herlögreglu og aðra sérfræðinga auk brynvarinna bíla og annarra hergagna. Flestir friðargæsluliðanna sem bætast í liðið á næstu vikum verða frá Evrópuríkjum, alls um 6.900 manns. Yfirmaður friðargæsluliðsins í Líbanon, franski hershöf´ðinginn Alain Pelegrini, segir að vopnahléð sé brothætt og þegar hafi ákveðin brot á því átt sér stað. Því sé ekki seinna vænna að styrkja friðargæsluliðið. Frakkar leiða liðið fram að áramótum, en þá taka Ítalir við.
Erlent Fréttir Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira