Erlent

Bætist við heraflann í Austur-Tímor

Ástralskur hermaður ræðir við innfæda í Dili í A-Tímor í gær.
Ástralskur hermaður ræðir við innfæda í Dili í A-Tímor í gær. MYND/AP

Hermenn frá Nýja-Sjálandi komu til Austur-Tímor í morgun til að reyna að stemma stigu við þeim átökum sem verið hafa í landinu undanfarið og hafa kostað tuttugu og sjö manns lífið. Þá átti forseti landsins fund með Ian Martin, sérlegum fulltrúa Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um ástandið. Upphaf ófriðarins má rekja til átaka sem blossuðu upp milli stjórnarhers landsins og fyrrverandi hermanna fyrr í mánuðinum þegar helmingur hersins var rekinn fyrir að fara í verkfall. Verst er ástandið í höfuðborg Austur-Tímor, Dili, en þar hafa flokkar ribbalda gengið berserksgang og brennt hús fólks til grunna. Auk nýsjálensku hersveitanna sem komu til landsins í morgun eru þar fyrir hermenn frá Ástralíu og Malasíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×