Lífið

300.000 manns á 30 árum

Árni Johnsen  athafnamaður og fyrrverandi alþingismaður fagnar 30 ára brekkusöngsafmæli sínu á þessu ári.
Árni Johnsen athafnamaður og fyrrverandi alþingismaður fagnar 30 ára brekkusöngsafmæli sínu á þessu ári. MYND/GVA

Ég syng með fólkinu ekki fyrir það, segir Árni Johnsen athafnamaður og fyrrverandi alþingismaður. Hann er ákveðið tákn Þjóðhátíðarinnar í Eyjum og á þessu ári fagnar hann 30 ára brekkusöngsafmæli sínu og hefur nú sungið fyrir um það bil 300.000 manns á öllum þessum árum sem samsvarar nánast allri þjóðinni. Árni byrjaði að syngja á Þjóðhátíð í Eyjum árið 1977, fyrsta árið sem Þjóðhátíð var haldin í Vestmanneyjum eftir gos.

Ég hef alltaf spilað á sunnudeginum og þetta byrjaði ansi rólega en núna hefur þetta vaxið svo svakalega að ég syng nánast alltaf með 10.000 manns, segir Árni.

Hann segir að brekkusöngurinn sé orðin eins konar helgistund á Þjóðhátíð, dalurinn fyllist og bærinn tæmist af fólki þegar Árni byrjar að spila. Brekkusöngurinn hefur alltaf heppnast mjög vel að mati Árna og fyrir nokkrum árum byrjaði hann að enda alltaf brekkusönginn á þjóðsöngnum. Ég spila þjóðsönginn í C dúr í staðin fyrir G dúr og það gerir það að verkum að fólk getur auðveldlega sungið með þessu annars erfiða lagi. Árni segir að hápunktur brekkusöngsins sé þegar dalur rís á fætur syngur þjóðsönginn og kveikt er á blysunum umhverfis dalinn. Það er mögnuð stund og maður bara klökknar þegar þessi sjón blasir við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.